Saga fyrirtækisins

365 miðlar
Stofnun 365 í ársbyrjun 2005 markaði þáttaskil í íslenskri fjölmiðlasögu. Með þessum samruna Fréttar og Norðurljósa varð til stærsta fjölmiðlafyrirtæki Íslands; framsækið þjónustufyrirtæki sem er leiðandi á sínu sviði, fyrirtæki með skýra framtíðarsýn.  Á stofnárinu var unnið markvisst að því að leggja traustan grunn fyrir framtíð 365, bæði með endurskipulagningu þeirra miðla sem fyrir voru, sem og tilkomu nýrra miðla.                       

Fyrirtækið var reist á traustum grunni sterkra og útbreiddra miðla; sjónvarpsstöðvanna Stöðvar 2 og Sýnar, dagblaðanna Fréttablaðsins og DV og útvarpsstöðvanna Bylgjunnar, FM957, X-ins 97,7 og Létt 96,7. 

Stöð 2 er elsta og stærsta áskriftarsjónvarpsstöð landsins, var sett á laggirnar árið 1986 og hefur allar götur síðan verið stærsta einkarekna sjónvarpsstöð landsins. Stöðin hefur aldrei haft fleiri áskrifendur og meira áhorf en einmitt á 20 ára starfsafmælinu árið 2006.

Sömu sögu er að segja af Bylgjunni, sem einnig varð 20 ára árið 2006. Þessi elsta starfandi einkarekna útvarpsstöð landsins er jafnan sú sem hefur mestu hlustunina af öllum íslenskum útvarpsstöðvum.

Sýn hefur verið langvinsælust íslenskra sjónvarpsstöðva sem einvörðungu sjónvarpa íþróttaefni í þann rúma áratug sem hún hefur verið starfrækt sem slík.

Fréttablaðið, fyrsta íslenska dagblaðið sem dreift er frítt inn á heimili landsins, kom fyrst út árið 2001. Blaðið náði með undraskjótum hætti að skapa sér yfirburðarstöðu á íslenskum blaðamarkaði, hvað varðar allt í senn útbreiðslu, lestur og tekjur af auglýsingasölu.

Fljótlega eftir stofnun 365 var hafinn undirbúningur fyrir flutning ólíkra miðla þess á einn og sama staðinn, í Skaftahlíð 24, þar sem fyrir voru ritstjórnir Fréttablaðsins og DV. Sjónvarpsstöðvarnar fluttu smám saman ofan af Krók- og Lynghálsi á árunum 2005 og 2006 og fylgdu útvarpsstöðvarnar síðan í kjölfarið. Um miðbik ársins 2006 voru flutningar að mestu gengnir um garð og nær allir miðlarnir búnir að hreiðra um sig í endurbættum húsakynnum í Skaftahlíðinni.

Í júní 2005 varð íslensk fjölmiðlaflóra enn blómlegri þegar 365 hóf útsendingar á nýrri sjónvarpsstöð sem kölluð var Sirkus og er hún opin öllum. Stöðin er fyrsta íslenska sjónvarpsstöðin sem markvisst býður upp á dagskrárefni ætlað ungu fólki. Hún er um leið máttarstólpi Sirkusfjölskyldunnar, sem sameinar undir einn hatt alla miðla 365 sem ætlaðir eru ungu fólki – Sirkus, PoppTíví, FM957, X-ið 97,7 og tímaritið Sirkus, sem dreift er með Fréttablaðinu á föstudögum.  Snemma árs 2006 opnaði svo formlega Sirkusvefurinn minnsirkus.is sem er helsti samkomustaður og miðpunktur Sirkusfjölskyldunnar.

Talstöðin, metnaðarfull talmálsstöð hóf útvarpssendingar í febrúar 2005, var undanfari fyrstu íslensku sjónvarpsstöðvarinnar NFS sem flutti eingöngu fréttir og hóf útsendingar í október 2005. Stöðin sendi fyrst íslenskra sjónvarpsstöðva út fréttir og alíslenska dagskrárgerð frá morgni til miðnættis. Samfara því var öll grunnfréttaöflun 365 miðla færð í hendur Nýju fréttastofunnar, stærstu og öflugustu fréttastofu Íslands.Óhagstað markaðsskilyrðu réðu mestu um að rekstrargrundvallur NFS reyndist ekki nægilega góður. Stöðin hætti því útsendingum í september 2006.

Um leið og útsendingar var hætt á NFS var tekin ákvörðun um að efla til mikilla muna fréttavefinn Vísi og beina þangað sameiginlegum kröftum fréttastofu Stöðvar 2 og Fréttablaðsins með það að leiðarljósi að búa til öflugasta fréttavef landsins.

Visir.is hafði náð þeim merkisáfanga árið 2005 að verða mest sótta vefsvæði landsins. Var það ekki síst að þakka tilkomu nýjunga á borð við VefRadíó - þar sem hægt var að hlusta á útvarpsstöðvar 365 miðla, VefBlöð - þar sem hægt var að lesa dagblöð og tímarit 365 miðla og VefTV – sem var fyrsta íslensku vefsjónvarpsstöðin. VefTV á Vísi fór í loftið í júlí 2005 en þar er nú hægt að sjá fréttir, beinar útsendingar og annað íslenskt sjónvarpsefni sem sýnt hefur verið á sjónvarpsstöðum 365 miðla.

Fleiri nýir og framsæknir fjölmiðlar komu til sögunnar árið 2005. Viðskiptablaðið Markaðurinn kom fyrst út í maí sem fylgiblað Fréttablaðsins á miðvikudögum. Markaðurinn náði fljótt fótfestu sem mest lesna viðskiptablað landsins og nýtur ótvíræðrar virðingar bæði meðal almennings og aðila viðskiptalífsins.

Reykjavik.com er þjónustumiðlill sem settur var á laggirnar sumarið 2006. Um er að ræða vefsíðu og á ensku sem einkum er ætlað að höfða til erlendra ferðamanna og bjóða uppá gagnlegar upplýsingar um menningu, afþreyingu og aðra viðburði sem í boði er í höfuðborginni hverju sinni.

Í desember 2006 var gerð endurskipulagning á prentútgáfu 365 miðla en markmiðið með henni var að skerpa áherslur og auka arðsemi í rekstri 365. Upp frá því var ákveðið að leggja höfuðáherslu á útgáfu Fréttablaðsins og fylgirita þess, en útgáfa annarra sjálfstæðra prentmiðla sem höfðu verið í eigu 365 miðla fluttust annað, eftir atvikum með aðild 365.  Það var í samræmi við þá stefnumörkum að efla kjarnastarfsemi 365 miðla á sviðið blaðaútgáfu, sjónvarps, útvarps og vefmiðla og stefna að forystuhlutverki á þeim sviðum miðlunar þar sem 365 starfar. Útgáfuréttur var þá seldur til Dagblaðsins-Vísis útgáfufélgags ehf. 365 mun átti þó afram 40% eignaraðild í því félagi, sem tók við útgáfunni 1. janúar 2007. Tímaritin Hér & Nú og Veggfóður sem höfðu verið í eigu 365 miðla voru þá seld til Útgáfufélagsins Fögrudyra ehf. Samhliða þessum breytingum var ákveðið að hætta útgáfu tímaritsins Birtu í þáverandi mynd og fella það inn í Fréttablaðið á árinu 2007.


 




Leturstærðir


Tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli