365 er skemmtilegur og framsækinn vinnustaður með frumkvæði og sköpunargleði að leiðarljósi. Framtíð fyrirtækisins byggir á hæfu starfsfólki sem leggur sig fram alla daga ársins.
Gildi 365
Sköpunargleði
Samstarf
Áreiðanleiki
Arðsemi
Starfsmannaval
365 leitast við að ráða starfsfólk sem:
Skarar fram úr á sínu sviði
Skapar og miðlar þekkingu
Er traust og áreiðanlegt
Er frumlegt og útsjónarsamt
Er sveigjanlegt og vinnur vel í hópi
Hefur þjónustulund og eflir heildina
Við val á starfsmönnum eru starfslýsingar hafðar til hliðsjónar
Hlutverk
Lifandi og upplýsandi þjónusta við landsmenn, 365 daga ársins.
Fræðsla- og endurmenntunarstefna
Mikilvægi þekkingar skal vera viðurkennt innan 365 og því skal fræðsla og þjálfun vera skipulagt átak fyrirtækisins sem lítur á þetta sem fjárfestingu í átt að samkeppnisforskoti.
Jafnréttismál
365 ætlar að gæta fyllsta jafnréttis milli kvenna og karla. Hver starfsmaður á að vera metinn og virtur að verðleikum sínum. Markmiðið er að stuðla að jafnri stöðu kvenna og karla og jöfnum tækifærum einstaklinga óháð kynferði.
Fjölskyldustefna
365 vill stuðla að því að samræma starfsskyldur og fjölskyldulíf.
Starfsskilyrði
Reynt er að tryggja öllum starfsmönnum gott starfsumhverfi sem fullnægir ströngustu kröfum um öryggi, hollustu og vinnuvernd.