Frétt

Mynd með frétt

31.05.2010

Fjölmennt á Fjölskyldudegi Stöð 2 Vild

Það var mikið fjör í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum á laugardag þar sem vildaráskrifendur Stöðvar 2 og fjölskyldur þeirra gerðu sér glaðan dag í boði Stöðvar 2. Að vanda var afar fjölmennt en gert er ráð fyrir að um tuttugu þúsund manns hafi verið í garðinum þegar hæst stóð, í blíðskaparveðri.

Boðið var uppá glæsilega skemmtidagskrá tilvalda fyrir börn á öllum aldri. Íþróttaálfurinn og Solla Stirða komu alla leið úr Latabæ til að skemmta börnunum og Sveppi og Villi grínuðu og sprelluðu eins og þeim er einum lagið. Ingó úr Veðurguðunum tók lagið við undirtekt barnanna og kættu Skoppa og Skrítla allra yngstu gestina með gælum sínum og glensi. Þá var frítt í tækin fyrir alla og þegar hungrið sagði til sín gátu allir fengið sér grillaða SS pylsu, Svala og ískalt Coke. Tugþúsund Latabæjarblöðrur voru blásnar upp og kættu lítil hjörtu.

Fjölskyldudagur Stöðvar 2 er fyrir alla þá áskrifendur sem eru meðlimir í Stöð 2 Vild.

Starfsfólk 365 vill koma þökkum til allra sem komu og skemmtu sér með okkur.


til baka

Nýjar fréttir


Mynd með frétt
18.03.2010

53 mottur hjá 365 miðlum!

Karlkyns starfsmenn 365 miðla hafa margir hverjir tekið virkan þátt í mottuátaki Krabbameinsfélagsins í mars.
Meira

Fréttir


Mynd með frétt
08.03.2010

Verðlaun til starfsmanna 365

Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands voru afhent á laugardaginn við athöfn í Gerðarsafni í Kópavogi. Samhliða voru afhent verðlaun í blaðaljósmyndarakeppninni: „myndir ársins“. Þrír starfsmenn 365 fengu verðlaun.
Meira



Leturstærðir


Tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli