Frétt

Mynd með frétt

28.05.2010

Bætt frídreifing Fréttablaðsins

Breytingar verða gerðar á frídreifingu og lausasölu Fréttablaðsins um næstu mánaðamót. Blaðinu verður áfram dreift ókeypis í lúgur og svokallaða Fréttablaðskassa á kjarnadreifingarsvæðinu, höfuðborginni og nærliggjandi bæjum. Annars staðar verður blaðið selt á 150 krónur. Lausasölustöðum verður fjölgað til muna og fjöldi Fréttablaðskassa í íbúðahverfum verður þrefaldaður, úr um 60 í 170. Á kjarnasvæðinu verður blaðinu hér eftir sem hingað til ýmist dreift frítt í lúgur eða í Fréttablaðskassa sem staðsettir eru á völdum stöðum inni í íbúðahverfum. Nýbreytnin í dreifingu á kjarnasvæðinu felst í að hætt verður frídreifingu í verslunum og á bensínstöðvum en blaðið í staðinn selt í lausasölu á  sömu stöðum. Þessar breytingar á dreifingu Fréttablaðsins koma í kjölfar breytinga sem voru innleiddar síðastliðinn vetur. Þetta fyrirkomulag dreifingar hefur gefist vel og til marks um það hefur lestur blaðsins aukist um 4,2 prósentustig frá því að lausasala blaðsins var tekin upp á landsbyggðinni. Þessu til viðbótar verða á ýmsum stöðum, til dæmis á flugvöllum og í öðrum samgöngumiðstöðvum, settir upp sjálfsalar. Fréttablaðið er gefið út daglega í um 90 þúsund eintökum og stendur ekki til að minnka það upplag. Auk þess er Fréttablaðið aðgengilegt ókeypis á rafrænu formi á visir.is. Þá geta lesendur fengið blaðið sent í tölvupósti alla útgáfudaga, án endurgjalds

til baka

Nýjar fréttir


Mynd með frétt
18.03.2010

53 mottur hjá 365 miðlum!

Karlkyns starfsmenn 365 miðla hafa margir hverjir tekið virkan þátt í mottuátaki Krabbameinsfélagsins í mars.
Meira

Fréttir


Mynd með frétt
08.03.2010

Verðlaun til starfsmanna 365

Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands voru afhent á laugardaginn við athöfn í Gerðarsafni í Kópavogi. Samhliða voru afhent verðlaun í blaðaljósmyndarakeppninni: „myndir ársins“. Þrír starfsmenn 365 fengu verðlaun.
Meira



Leturstærðir


Tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli