Vaktarhópurinn svokallaði, fimmmenningarnir sem standa að bakið þáttaröðinni Fangavaktin og Bjarnfreðarson, kom sá og sigraði á Eddunni, verðlaunahátíð íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar á dögunum.
Fagnavaktin, sem sýnd var á Stöð 2 sl. vetur, var valin besta leikna sjónvarpefnið og fullkomnaði þar þrennuna því Næturvaktin og Dagvaktin höfðu unnið sama afrek á fyrri Eddu-hátíðum. Fangavaktin hlaut samtals sjö Eddu-verðlaun. Jón Gnarr var valinn besti leikarinn, Ragnar Bragason leikstjóri ársins, Björn Thors, sem fór á kostum í hlutverki Kenneths Mána, var valinn meðleikari ársins, Bergsteinn Björgúlfsson tökumaður ársins, Helga Rós V. Hannam fékk verðlaun fyrir búninga og Sverrir Kristjánsson og Guðni Halldórsson fyrir klippingu.
365 miðlar óskar þessum sigursæla hópi til hamingju, en allt þeirra efni hefur verið unnið í samvinnu við Stöð 2 og sýnt þar. Við erum því sérstaklega stolt af árangrinum!
Þess má geta að Vaktar-hópurinn er með nýja sjónvarpsþáttaröð í undirbúningi, sem mun eiga sér stað á geðdeild og verða þættirnir að sjálfsögðu á dagskrá Stöðvar 2.