Auglýsingaefni frá Stöð 2 var tilnefnt til fimm verðlauna á verðlaunahátíð ÍMARK (félag íslensks markaðsfólks) sem var haldin föstudaginn 5. mars. Þetta var í tuttugasta og fjórða skiptið sem verðlaunahátíðin var haldin, en hún fór fram á Hilton Reykjavík Nordica hótelinu.
Í flokknum „viðburðir“ vann fangavaktarleikur Stöðvar 2 í Kringlunni. Leikurinn fólst í því að tíu manns var boðið að eyða þremur sólarhringum í fangaklefa í Kringlunni. Þau kepptu sín á milli með því að leysa ýmsar skemmtilegar þrautir og reyna að lágmarka refsistig. Sigurvegarinn hlaut síðan vegleg verðlaun. Sagafilm framleiddi viðburðinn.
Í flokknum „auglýsingaherferðir“, var áskriftarherferð Stöðvar 2 haustið 2009 tilnefnd, í „opnum flokki“ var auglýsingaherferð Ólafs Ragnars í Fangavaktinni um Plús Hús tilnefnd, í flokknum „markpóstur“, var boðskort í haustpartý Stöðvar 2 tilnefnt og í flokknum „sjónvarpsauglýsingar“, þá var Stöðvar 2 auglýsingin um góðar stundir í vændum tilnefnd. Jónsson & Le‘macks framleiddi allar þessar auglýsingar.
Þess má geta að aldrei áður hafa auglýsingar Stöðvar 2 verið tilnefndir til svo margra ÍMARK verðlauna og sýnir hversu mikil sókn er í gangi.