28.05.2010
Breytingar verða gerðar á frídreifingu og lausasölu Fréttablaðsins um næstu mánaðamót. Blaðinu verður áfram dreift ókeypis í lúgur og svokallaða Fréttablaðskassa á kjarnadreifingarsvæðinu, höfuðborginni og nærliggjandi bæjum. Annars staðar verður blaðið selt á 150 krónur. Lausasölustöðum verður fjölgað til muna og fjöldi Fréttablaðskassa í íbúðahverfum verður þrefaldaður, úr um 60 í 170.
Meira