Fréttir

Mynd með frétt
31.05.2010

Fjölmennt á Fjölskyldudegi Stöð 2 Vild

Það var mikið fjör í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum á laugardag þar sem vildaráskrifendur Stöðvar 2 og fjölskyldur þeirra gerðu sér glaðan dag í boði Stöðvar 2. Að vanda var afar fjölmennt en gert er ráð fyrir að um tuttugu þúsund manns hafi verið í garðinum þegar hæst stóð, í blíðskaparveðri.

Boðið var uppá glæsilega skemmtidagskrá tilvalda fyrir börn á öllum aldri. Íþróttaálfurinn og Solla Stirða komu alla leið úr Latabæ til að skemmta börnunum og Sveppi og Villi grínuðu og sprelluðu eins og þeim er einum lagið. Ingó úr Veðurguðunum tók lagið við undirtekt barnanna og kættu Skoppa og Skrítla allra yngstu gestina með gælum sínum og glensi. Þá var frítt í tækin fyrir alla og þegar hungrið sagði til sín gátu allir fengið sér grillaða SS pylsu, Svala og ískalt Coke. Tugþúsund Latabæjarblöðrur voru blásnar upp og kættu lítil hjörtu.

Fjölskyldudagur Stöðvar 2 er fyrir alla þá áskrifendur sem eru meðlimir í Stöð 2 Vild.

Starfsfólk 365 vill koma þökkum til allra sem komu og skemmtu sér með okkur.



Nýjar fréttir


Mynd með frétt
28.05.2010

Bætt frídreifing Fréttablaðsins

Breytingar verða gerðar á frídreifingu og lausasölu Fréttablaðsins um næstu mánaðamót. Blaðinu verður áfram dreift ókeypis í lúgur og svokallaða Fréttablaðskassa á kjarnadreifingarsvæðinu, höfuðborginni og nærliggjandi bæjum. Annars staðar verður blaðið selt á 150 krónur. Lausasölustöðum verður fjölgað til muna og fjöldi Fréttablaðskassa í íbúðahverfum verður þrefaldaður, úr um 60 í 170.
Meira

Fréttir


Mynd með frétt
12.03.2010

Slysavarnarfélagið Landsbjörg hlaut Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins

Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins voru afhent við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í gær. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin. Þetta er í fimmta sinn sem Fréttablaðið veitir Samfélagsverðlaunin en þau eru veitt í fjórum flokkum auk heiðursverðlauna.
Meira



Leturstærðir


Tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli