Logo-365

Miðlar 365

365 er þjónustufyrirtæki á sviði blaðaútgáfu, sjónvarps- og útvarpsreksturs og vefmiðlunar. Fyrirtækið rekur fimm sjónvarpsstöðvar, fimm útvarpsstöðvar og útbreiddasta dagblað landsins - Fréttablaðið.

Stöð 2, var sett á laggirnar árið 1986 og er elsta og stærsta áskriftarsjónvarpsstöð landsins í einkaeigu. Stöð 2 sendir út fjölbreytt afþreyingarefni í hæsta gæðaflokki allan sólarhringinn.  Stöðin nýtur sívaxandi vinsælda og hefur á síðustu misserum slegið öll met í fjölda áskrifenda.  
Stöð 2 Sport er vinsæl íþróttasjónvarpsstöð, sú eina sinnar tegundar á Íslandi, þar sem meðal annars má finna beinar útsendingar frá öllum helstu íþróttaviðburðum heims.
Stöð 2 Extra er afþreyingarstöð sem fylgir með áskrift að Stöð 2, rétt eins og Stöð 2 Bíó sem er kvikmyndastöð sem sýnir nýlegar og eldri kvikmyndir allan sólarhringinn. Nova Tíví er tónlistarstöð sem sýnir tónlistarmyndbönd allan sólarhringinn.

Þá endurvarpa 365 miðlar einnig fjölda erlendra sjónvarpsstöðva um Digital Ísland, stafrænt dreifikerfi Vodafone, sem nær til rúmlega 90% landsmanna.

Bylgjan var stofnuð árið 1986 og er elsta og vinsælasta einkarekna útvarpsstöð landsins.

Ennfremur rekur 365 nokkrar útvarpsstöðvar, með mismunandi áherslur og fyrir mismunandi aldurshópa:

FM957 leikur vinsælustu tónlistina fyrir yngri hlustendur. X-ið spilar framsækna rokktónlist.

Létt Bylgjan leikur þægilega og áheyrilega tónlist. Lögin við vinnuna. Gull Bylgjan leikur vinsælustu tónlist frá 7. og 8. áratug síðustu aldar.

Fréttablaðið er dagblað í frídreifingu og er dreift í 90.000 eintökum. Blaðið hóf göngu sína árið 2001 og er útbreiddasta og mest lesna dagblað landsins. Þá eru gefin út með Fréttablaðinu ýmis sérblöð ásamt vikulegum blaðhlutum.

Vísir.is er öflugur frétta- og afþreyingarmiðill með fjölbreyttar þjónustur og efnistök.




Leturstærðir


Tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli