365 er framsækið fjölmiðlafyrirtæki sem veitir lifandi og upplýsandi þjónustu við landsmenn, 365 daga ársins. 365 miðlar starfa á öllum sviðum fjölmiðlunar: Sjónvarps- og útvarpsrekstri, blaðaútgáfu og vefmiðlun.
Fyrirtækið rekur fimm sjónvarpsstöðvar, þar á meðal Stöð 2, elstu og stærstu áskriftarstöð landsins; fimm útvarpsstöðvar, þar á meðal Bylgjuna, stærstu og elstu einkareknu útvarpsstöð landsins, Fréttablaðið, útbreiddasta dagblað landsins, og verðlaunavefinn Visir.is.
31.05.2010
Hátt í 20.000 vildaráskrifendur Stöðvar 2 og fjölskyldur þeirra gerðu sér glaðan dag í blíðskaparveðri á hinum árlega Fjölskyldudegi Stöð 2 Vild.
Meira
28.05.2010
Breytingar verða gerðar á frídreifingu og lausasölu Fréttablaðsins um næstu mánaðamót. Blaðinu verður áfram dreift ókeypis í lúgur og svokallaða Fréttablaðskassa á kjarnadreifingarsvæðinu, höfuðborginni og nærliggjandi bæjum. Annars staðar verður blaðið selt á 150 krónur. Lausasölustöðum verður fjölgað til muna og fjöldi Fréttablaðskassa í íbúðahverfum verður þrefaldaður, úr um 60 í 170.
Meira